Að þiggja egg
Eggjagjöf getur verið góður kostur fyrir einstaklinga og pör sem glíma við ófrjósemi og veitir þeim möguleika á að ganga með og eignast barn.
Eggjagjöf getur meðal annars hentað:
- Konum sem hafa misst eggjastokka á yngri árum, til dæmis vegna krabbameinsmeðferðar eða skurðaðgerða
- Konum sem hafa farið á breytingaskeið fyrir fertugt, en slíkt ástand kemur fram hjá um 1% kvenna
- Konum með alvarlega arfgenga sjúkdóma þar sem hætta er á að sjúkdómur erfist til barns
- Konum sem svara ekki hormónameðferð við glasafrjóvgun
- Konum sem hafa gengist undir ítrekaðar árangurslausar glasafrjóvganir
- Konum sem eru 43 ára eða eldri og hafa skerta eggjastarfsemi.
Eggjagjöf getur verið annað hvort nafnlaus eða undir nafni, allt eftir óskum eggjagjafa og eggþega og því sem lög og reglur kveða á um.